Ég er ekki dauð bara svo þið vitið.. 
Á Föstudaginn kom Steini ekki fyrr en tólf vegna
viðbjóðursveðurs og því seinkaði Herjólfi þó nokkuð. Við létum það
ekki stoppa okkur og héldum á djammið klukkan eitt. Fórum heim til
Einis þar sem Stefán, Jónína, Svala og Karlotta voru. Við stoppuðum
hins vegar stutt þar sem niko partý niður í Ásgarði kallaði á
okkur. Þar voru sumir (BHBHBHBHBHBHBH) alveg haugafullir (pottþétt
ekki bh) og sumir alveg ótrúlega pirrandi (pottþétt ekki
Einar).
Það var samt sem áður fjör, ég fékk neftóbak í augað og fór í
slag við dengsa í slagtogi með Jóa og hann endaði þannig
að dengsi var komin undir snókerborð og ég að pota í hann með kjuða
að reyna að ná þessari HELVÍTIS flautu ! Hver gefur dengsa flautu ?
Án alls djoks !
En þaðan héldum við á Drífanda og það var ágætt ég var samt að
drepast í augunum af einhverri ástæðu og gat varla haft þau opin.
En það var tekið smá myndaflipp og spjall. Við vorum komin heim
eitthvað í kringum fimm minnir mig ooog já þá er föstudagskvöldið
komið 

Verslunarballið var svo á laugardaginn og stóð alveg undir
væntingum og vínveitingum, guð minn góður hvað ég drakk mikið ! Það
var ekkert smá gaman.. Ætla að rekja kvöldið í nokkrum atriðum
hérna..
Ég og Þórgunnur héldum heim til Svönu um sex leitið í geðveikt góða
og stórhættulega bollu og fjör. Fengum medalíur og ég var besti
nýliðinn.. Róbert Marshall var heiðursgestur skýlisins og fékk að
vera hluti af okkur eitt kvöld. Eftir mikið blaður og pælingar kom
rútan að ná í okkur og henti okkur uppí höll. Þar var þessi
"vínsmökkun" eða já, einn sopi af hvítvíni eða rauðvíni á mann. En
það skánaði nú heldur betur þegar ég áttaði mig á því að
rauðvínsflöskunum og hvítvínsflöskunum var staflað á borðin.
Maturinn var auðvitað seinn eins og gengur og gerist og diskurinn
minn var heldur betur fábrotin þar sem ég vildi ekki fá mér
eitthvað sem ég vissi alveg að ég borðaði ekkert af því.

Þetta var maturinn minn..
Björgvin Franz var veislustjórinn
og svona án djóks maður fær ekki ógeð af eftirhermunum hans. Þegar
hann tekur Geir Ólafsson þá slær honum engin við. Við stofnuðum
aðdáandahóp sem bar nafnið "Geirínur" en þarna var ég aðeins búin
að svíkja lit og var komin yfir á borðið hjá Klettinum.. Var
solldið mikið þar

Og já svo þið vitið þá er þetta bara
aðdáandaklúbbur Geirs Ólafssonar þegar að Björgvin Franz tekur
hann.
En Arndís Ósk söng líka nokkur veeel valin lög og ég held að allt
ætlaði um koll að keyra á borðinu hjá okkur enda er Arndís í
Skýlisteiminu. Öskruðum af lífs og sálarkröftum og sumar voru
farnar að standa uppá stólum.
Þegar að Bjarni töframaður steig uppá svið þá meig ég næstum því í
mig af hlátri.. Ég er með aulahúmor ég veit, enda var ég ein á
okkar borði sem hló held ég. Þarna var ég farinn að hella í mig
áfengi í röðum þar sem ég varð bara ekkert drukkin... Ó guð ég fékk
að gjalda þess hvað ég drakk mikið seinna um kvöldið. Og hey já..
Hver vann þetta EYJOL ?
Jæja að skemmtiatriðunum liðnum þá
stakk ég af í smá private party með Klettstúlkum heim til Kristín
Öldu og þambaði amarula og kampavín. Tókum síðan leigubíl uppí höll
og þá kikkaði allt áfengi heimsins inn á mig og ég, eins og mamma
mín orðar það, varð fiðrildi. Ég nauðgaði Steina næstum því eins og
ég hafði ekki séð hann í áratugi þegar hann kom uppí höll, sleikti
hálsinn Völu og hélt ég væri loksins orðin besta vinkona Róbert
Marshalls.. What an idiot haha. Og þá sagði Steingrímur að komið
væri nóg (sem var satt) og fór með mig heim.
Svo er Steingrímur á leið til
Slóveníu í helgarferð með vinnunni sinni um helgina þannig að ég
verð bara alein. En það er samt djamm þar sem sytir mín er
hálffimmtug og verður svakalegt partý

Svo er spurning hvað maður
gerir á fimmtudaginn, var verið að biðja mig að vera spyrill í
þarna SOS á Drífanda og ætli maður taki það ekki að sér.. Eða ég
veit ekki.. Er nokkuð frí á fimmtudaginn líka í skólanum ? var
eitthvað að heyra það og væri alveg til í það því þá ætla ég að
hendast í dagsferð til Rvk..
En vóó þetta er orðið svo langt
blogg.. takk fyrir geggjaða helgi

Hendi inn myndunum við
tækifæri..
Untill next time, Ágústa out

Hvernig get ég verið svona falleg
? haha
Blur -
Ambulance